Árekstrarprófanir hinnar virtu Euro NCAP stofnunar eru mælikvarði á öryggi bíla sem eru á markaði í Evrópu. Í nýjustu prófun Euro NCAP hlaut nýi Kia Sportage sportjeppinn fullt hús stiga, fimm stjörnur, í þessari ströngu prófun. Hann hafði talsverða yfirburði yfir keppinautana í þessum stærðarflokki og kom vel út í öllum flokkum prófunarinnar.
Kia Sportage kom á markað á síðasta ári í gerbreyttri mynd og hefur eftirspurnin í Evrópu verið meiri en framleiðandinn hefur getað sinnt. Bíllinn er hannaður af Þjóðverjanum Peter Schreyer, sem áður var aðalhönnuður hjá Audi. Bíllinn er hlaðinn öryggisbúnaði. Hann er með rafeindastýrðri stöðugleikastýringu, BAS-hemlakerfi, sex öryggispúðum, virkum hnakkapúðum og öryggisbeltum með forstrekkjurum við öll sæti svo fátt eitt sé nefnt. Kia er auk þess eini bílaframleiðandinn í heimi sem býður 7 ára ábyrgð á öllum sínum ökutækjum.
Á síðasta ári prófaði Euro NCAP 29 bíla og einungis 65% þeirra fengu fimm stjörnur. Árið 2009 hlutu hins vegar 90% allra bíla sem voru prófaðir fimm stjörnur. Þetta þykir til marks um að breytt vinnulag Euro NCAP og strangari viðmið gera bílaframleiðendum erfiðara um vik að fá fullt hús stiga fyrir sína bíla.
Frá árinu 2009 verða bílar að vera búnir rafeindastýrðri stöðugleikastýringu til þess að vera gjaldgengir í prófunum Euro NCAP. Á þessu ári hyggst stofnunin síðan hefja sérstakar prófanir á þessum búnaði og virkni hans í bílum sem eru prófaðir. Á hverju ári kynna bílaframleiðendur nýjungar á sviði öryggisbúnaðar í því skyni að auka öryggi farþega og ná góðri útkomu í prófunum Euro NCAP.