KIA Picanto

Hulunni svipt af nýrri kynslóð KIA Picanto.

- Kia birtir fyrstu opinberu myndirnar af ‘þroskaðri’ og ‘vel mótaðri’ nýrri gerð
- Lág CO2 gildi falla að íslenskri tollalöggjöf
- Boðið verður upp á tvær útfærslur og fjórar nýjar vélar
- Nýr KIA Picanto verður frumsýndur á alþjóðlegu bílasýningunni í Genf í ár

(SEOUL) 4. Janúar, 2011 – Kia Motors Corporation hefur birt fyrstu opinberu myndirnar af næstu kynslóð borgarbílsins KIA Picanto sem státar nú af meiri dirfsku, þroska og sjálfsöryggi.

Bifreiðin hefur verið endurhönnuð frá grunni, er lengri en fyrirrennarinn og með meira hjólahaf. Afraksturinn er bifreið sem setur ný viðmið í sínum stærðarflokki. Aðal útlitshönnuður KIA, Peter Schreyer, orðar það þannig: “Samspil ljóss og skugga við hönnun bílsins og rísandi hliðarsvipurinn gefur bílnum yfirbragð rásfestu og stöðugleika.”

Nýr KIA Picanto býðst sem fyrr í fimm dyra útfærslu en einnig verður boðið upp á 3ja dyra sportútfærslu.

Fjórar nýjar bensínvélar eru í boði, 1.0 og 1.2 lítra. Allar vélarnar eru með afar lágt CO2 gildi en sem kunnugt er eru bílar hér á landi nú tolllagðir út frá magni CO2 í útblæstri.

Kia hefur komið sérlega vel út hvað útblástur varðar. Til dæmis lækkuðu 13 af 19 Kia bílum í verðlista Öskju í verði um áramótin, þar með talið stærsti bíllinn, Kia Sorento, sem er 197 hestöfl og fæst að auki í 7 manna útfærslu.

Ný kynslóð af Picanto verður fyrst kynnt opinberlega á alþjóðlegu bílasýningunni í Genf í mars á þessu ári.