ASKJA er þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig i sölu og þjónustu á bifreiðum frá Kia Motors. Markmið fyrirtækisins er að vera í fararbroddi hvað varðar þjónustu til viðskiptavina og markaðssetningu þeirrar vöru sem fyrirtækið selur og þjónustar.
Askja hóf starfsemi 1. mars 2005 og er viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Kia á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa ríflega 50 manns. ASKJA er til húsa í mjög vel búnu og glæsilegu húsnæði á Krókhálsi 11, Reykjavík. Þar er meðal annars að finna fullkomið bílaverkstæði og rúmgóðan og bjartan sýningarsal.
Söludeildir eru opnar alla virka daga frá kl.9-18. Þjónustudeildir alla virka daga frá kl. 8-18.
Smelltu hér til að fara inn á askja.is