PRO_CEE'D

Láttu drauma þína rætast í hinum undraverða Kia pro_cee'd, sem er öflugur þriggja dyra bíll með sportlegu yfirbragði, lipur í akstri og búinn hágæða véltækni. Kia pro_cee'd höfðar til skynseminnar vegna hagkæmni og snilldarlegra lausna í búnaði. Pro_cee'd er heppileg viðbót við grunngerðirnar af cee'd, enda þaðan fenginn kjarninn í tækninýjunum, sem ásamt ýmsum breytingum á útliti gera bílinn sérstakan og greina hann rækilega frá keppinautunum.

Ekki eins og fjöldinn

Kia pro_cee'd kemur fram á sjónarsviðið með nýstárlegt, sjálfstætt form, sem geislar af frískleika með fagrar útlínur og fágað yfirborð. Hér er á ferðinni bíll sem vekur óskipta athygli, hvar sem hann kemur. Glæsileg yfirbyggingin er lýsandi dæmi um sérlega vönduð vinnubrögð, sem kemur m.a. fram í afar lágum vindstuðli.