Loka

Spennustigið magnast hjá Skutlunum vegna fyrirhugaðrar hringferðar


8. júlí 2008

Fyrirtíðarspenna í herbúðum Skutlanna

• Spennustigið magnast í herbúðum Skutlanna
 

Mikil spenna ríkir í herbúðum Skutlanna vegna fyrirhugaðrar ferðar í kringum landið. Fyrir þá sem ekki vita eru Skutlurnar klúbbur bifhjólakvenna sem var stofnaður árið 2005 af Ásthildi Kristínu Einarsdóttur. Ferðin hefst 9. júlí og lýkur þann 13.

Á heimasíðu kvenhjólaklúbbsins, www.skutlur.is, má greina að fyrirtíðarspennustigið hefur stigmagnast í herbúðum þeirra. Áfangastaðir á leiðinni eru Höfn, Neskaupsstaður og Akureyri.

KIA styður við ferð Skutlanna um landið með því að leggja til Kia Carens bifreið sem mun hýsa allan farangur skutlanna. Við stýrið verður Ásthildur Skutlumamma og er bensínfótur hennar þegar farinn að titra af tilhlökkun.

Skutlumamma, Ásthildur Kristín Einarsdóttir (t.v.) og Íris Sigurðardóttir, tóku við lyklum að Kia Carens bifreiðinni sem mun fylgja Skutlunum eins og skugginn á leið þeirra um landið.

Skutlurnar hafa víða farið frá stofnun en þó aðallega um suðvesturhorn landsins. Fyrstu hringferðina fóru þær í fyrra. Eins og í fyrra verður fartölva með í för og munu Skutlurnar blogga um ferðalagið á hverjum degi. Einnig verður hægt að nálgast ferðaáætlunina á heimasíðunni, upplýsingar um áningarstaði o.fl.
 
KIA óskar Skutlunum góðrar ferðar og alls hins besta í fyrirhugaðri ferð og nánustu framtíð.

-