Aftur í fréttayfirlitKia cee´d fær 5 stjörnur í árekstrarprófunum EuroNCAP!


Kia cee'd fær 5 stjörnur í árekstrarprófunum Euro NCAP
Frankfurt, 29. ágúst, 2007 - Nýr KIA cee’d fjölskyldubíllinn fékk 5 stjörnur í nýrri árekstrarprófun Euro NCAP. KIA Cee’d fékk 5 stjörnur fyrir varnir fyrir fullorðna, 4 stjörnur fyrir varnir fyrir börn og 2 stjörnur fyrir varnir fyrir gangandi vegfarendur. Þar með telst hann meðal öruggustu bíla í C-stærðarflokki.
„Niðurstöður í nýrri árekstrarprófun Euro NCAP eru tímamótaáfangi fyrir KIA. KIA Cee’d er hannaður, teiknaður og smíðaður í Evrópu og er ætlað að uppfylla væntingar evrópskra bílakaupenda á öllum sviðum, þar með talið öryggi,” segir Yong-Hwan Kim, aðstoðarforstjóri Kia Motors Corporation.
„Samspil margra kosta bílsins, 5 stjörnur í árestrarprófuninni og einstæð 7 ára ábyrgð KIA gerir cee’d enn fýsilegri í hugum evrópskra bílakaupenda og stuðlar að áhyggjulausum bílkaupum og lágum rekstrarkostnaði.”
„Verkfræðingar KIA hönnuðu cee’d út frá þeim forsendum að hann veitti farþegum alhliða varnir í raunverulegum árekstrum. Verkfræðingar okkar gengu út frá því við hönnun að cee’d fengi 5 stjörnur í árekstrarprófun Euro NCAP og niðurstöðurnar nú fyrir nýjasta bílinn í c-stærðarflokki staðfesta þau miklu framfaraskref sem KIA hefur tekið á þessu sviði,” bætti Yong-Hwan Kim við.
KIA cee’d fimm dyra hlaðbakurinn, sem í grunninn er búinn sex öryggispúðum (að framan, á hliðum og loftpúðagardínum), hlaut ágæta eða framúrskarandi einkunn í vörn gegn árekstri að framanverðu, hliðarárekstri og vörnum fyrir barnunga farþega. Kia cee’d er framleiddur í nýrri verksmiðju Kia í Zilina í Slóvakíu.
Á fyrstu stigum einbeittu hönnuðir KIA sér að „virku öryggi” cee’d til að mynda með góðu útsýni úr bílnum, viðbragðsflýti og kvikleika í akstri og öflugum hemlabúnaði sem gerir ökumönnum kleift að forðast óhöpp og varasamar aðstæður sem upp kunna að koma.
Innan tíðar stækkar cee’d fjölskyldan þegar við bætist glæsilegur cee’d langbakur sem kemur á markað í Evrópu í september. Jafnframt verður nýr og spennandi 3ja dyra pro cee’d kynntur á bílasýningunni í Frankfurt.
„Markaðssetning KIA cee’d hefur haft í för með sér gæðabyltingu hjá KIA. Það, ásamt afar skilvirkri verksmiðju okkar í Slóvakíu hefur breytt viðhorfi bílakaupenda til okkar. Cee’d er fyrsti bíll KIA og fyrsti bíllinn sem framleiddur er í Kóreu sem hlýtur toppeinkunn evrópskrar öryggisstofnunar,” segir Jean-Charles Lievens, aðalforstjóri Kia Motors í Evrópu. „Flestir þeir sem kaupa fimm dyra cee’d eru að kynnast KIA í fyrsta sinn og við væntum þess að cee’d langbakurinn og 3ja dyra pro cee’d muni ýta enn frekar undir þessa þróun."