7 ára ábyrgð

7 ára ábyrgð

Á nokkrum árum hefur KIA tekist að komast í röð þeirra bifreiðaframleiðenda sem hvað mestum árangri hafa náð í Evrópu. En hver er lykillinn að þeirri velgengni? Alstaðar þar sem við komum bjóðum við betur og kappkostum að gera örlítið meira fyrir viðskiptavininn en hann á að venjast. Stöðugar tækninýjungar, yfirgripsmikið ábyrgðarkerfi og vönduð viðgerðarþjónusta sem framkvæmd er af sérmenntuðum fagmönnum, það er ástæðan fyrir því að skjólstæðingar sækjast eftir frekari viðskiptum og ítreka komur sínar til okkar. Fyrir það erum við þakklát og þess vegna leggjum við okkur fram við að bæta stöðugt framleiðslu okkar og þjónustu. Við mælum árangur okkar í þinni ánægju.

7 ára ábyrgð
Kia umboðið, fyrir hönd Kia verksmiðjanna, ábyrgist Kia fólksbíla gagnvart framleiðslugöllum er í ljós kunna að koma á ábyrgðartímanum. Ábyrgðin tekur gildi um leið og fyrsti kaupandi tekur við bifreiðinni af seljanda eða umboðsmanni hans og hefur undirritað ábyrgðarskírteini og varir í 84 mánuði frá þeim degi frá 1. Janúar 2010 að telja samkvæmt eftirfarandi:

Í 7 ár eða 150.000 km akstur innan þess tíma, á öllum hlutum tilheyrandi aflrás bifreiðarinnar og á öðrum hlutum bifreiðarinnar (sjá nánari lýsingu á ábyrgðarskilmálum í ábyrgðarskírteini sem fylgir bifreiðinni og undantekningar).

10 ára ábyrgð á yfirbyggingu gegn gegnumryðgun
Kia verksmiðjurnar ábyrgjast yfirbyggingu bifreiðarinnar gagnvart gegnumryðgun í 10 ár með þeim skilyrðum, sem sett eru í ábyrgðarskilmálum sem bifreiðinni fylgja og með eftirfarandi undantekningum:

Tæring vegna skemmda af völdum óhappa, misnotkunar eða breytinga á bifreiðinni.
Kemísk efnamengun, fugladrit, súrt regn, snjóhagl, umferðaróhöpp, sandfok, saltmengun, afísunarefni, grjótkast, eldsvoði, mannleg mistök, vanræksla, óeirðir eða náttúruhamfarir.
Tæring vegna vanrækslu á að lagfæra minniháttar skemmdir.
Tæring sem rekja má til þess að ekki hefur verið farið eftir fyrirmælum í þjónustuhandbók.
Ábyrgðin tekur hvorki til eðlilegs slits á bifreiðinni né skemmda sem kunna að verða vegna óhappaatvika, misnotkunar, vanrækslu í meðferð eða við afbrigðilega notkun, svo sem í kappakstri, akstri utan vega o.fl.

Komi fram meintur framleiðslugalli á bifreiðinni, ber eiganda hennar að tilkynna það Kia umboðinu án tafar eða næsta umboðsmanni fyrirtækisins og framvísa ábyrgðarskírteini um leið. Dráttur á að tilkynna meintan galla getur valdið ógildingu ábyrgðar.