Loka

K-2900 ábyrgð

3ja ára ábyrgð
Kia umboðið, fyrir hönd Kia verksmiðjanna, ábyrgist bifreiðina Kia K-2900 gagnvart framleiðslugöllum er í ljós kunna að koma á ábyrgðartímanum. Ábyrgðin tekur gildi um leið og fyrsti kaupandi tekur við bifreiðinni af seljanda eða umboðsmanni hans og hefur undirritað ábyrgðarskírteini og varir í 36 mánuði frá þeim degi, án tillits til ekinna kílómetra.

Ábyrgðin tekur hvorki til eðlilegs slits á bifreiðinni né skemmda sem kunna að verða vegna óhappaatvika, misnotkunar, vanrækslu í meðferð eða við afbrigðilega notkun, svo sem í kappakstri, akstri utan vega o.fl.

Komi fram meintur framleiðslugalli á bifreiðinni, ber eiganda hennar að tilkynna það Kia umboðinu án tafar eða næsta umboðsmanni fyrirtækisins og framvísa ábyrgðarskírteini um leið. Dráttur á að tilkynna meintan galla getur valdið ógildingu ábyrgðar.

-