KIA Motors
Kia Motors
Kia er hluti af framsækinni, nútímalegri og alþjóðlegri samstæðu, sem framleiðir meira en þrjár milljónir bíla á ári í nánu samstarfi við Hyundai Motor Corporation og DaimlerChrysler. Með svo mikilli framleiðslu er fyrirtækjasamstæðan nú þegar á meðal 10 stærstu fyrirtækja heims og er á góðri leið með að verða á meðal fimm stærstu bílaframleiðenda heims.
KIA Motors Corporation
Kia er einn af fáum bílaframleiðendum í Suður-Kóreu og saga fyrirtækisins nær 50 ár aftur í tímann. Fyrirtækið var stofnuð um framleiðslu á reiðhjólum og mótorhjólum og bílaframleiðsla hófst á áttunda áratug síðustu aldar. Mikil og hröð þróunarvinna hófst í kjölfarið sem endurspeglast í þeirri breiðu framleiðslulínu sem er á boðstólum í dag.
Hugmyndabílar
Þar með er sagan þó ekki öll sögð. Fjölmörg verkefni liggja fyrir í næstu framtíð. Til viðbótar við fjölmargar nýjar bílgerðir kynnir Kia með reglubundnum hætti hugmyndabíla. Þessir bílar gefa sterklega til kynna hvernig Kia sér fyrir sér framtíðina í framleiðslu bíla.
Verksmiðjur
Hjá Kia Motors starfa yfir 30.000 manns í þremur nútímalegum verksmiðjum í Suður-Kóreu. Stærst þeirra er verksmiðjan í Hwasung með framleiðslugetu upp á um 600 þúsund bíla á ári. Í Sohari er elsta verksmiðja Kia. Þar eru framleiddir 340 þúsund bílar á ári. Fyrirtækjabílar Kia eru framleiddir í verksmiðjunni í Kwangju. Þar renna samtals 220.000 bílar af færibandinu á hverju ári.
Ný verksmiðja KIA í Evrópu
KIA fjárfesti fyrir um einn milljarð evra í byggingu nýrrar verskmiðju í Zilina í Slóvakíu. Bygging verksmiðjunnar, þar sem eingöngu eru framleiddir Kia bílar, hófst í apríl 2004 og framleiðsla hófst þar í árslok 2006. Áætlanir gera ráð fyrir framleiðslu á 200 þúsund bílum á ári. Þetta er fyrsta, stóra verksmiðjan sem KIA starfrækir á evrópskri grund.
Verksmiðjan í Zilina er tenging Kia vörumerkisins við álfuna. Þar framleiðir Kia bíla sem uppfylla hæstu gæðaviðmið í Evrópu. Nýja verksmiðjan setur ekki einungis ný viðmið í skilvirkni og framleiðni heldur uppfyllir hún um leið ströngustu reglugerðir á sviði umhverfismála sem í gildi eru innan Evrópusambandsins.
Gæði er forgangsatriði í allri starfsemi Kia. Af þeim sökum er einn af hverjum 15 starfsmönnum í verksmiðjunni í Zilina ábyrgur fyrir gæðaeftirliti. Þar starfa nú 1.200 færustu starfsmenn á sínu sviði. Búist er við að starfsmannafjöldi verði kominn í 3.000 manns á árinu 2009.
Nýjar höfuðstöðvar í Evrópu
Höfuðstöðvar KIA í Evrópu voru fluttar í splunkunýja byggingu í Frankfurt í Þýskalandi 10. september 2007. Staðsetning byggingarinnar er ekki einungis táknræn. Hún er í næsta nágrenni við sýningarhallirnar þar sem bílasýningin í Frankfurt er haldin annað hvert ár. Bílasýningin í Frankfurt er ein sú mikilvægasta í heiminum og sú sem allir bílaframleiðendur leggja mesta áherslu á þegar þeir kynna sína nýjustu bíla. Þýskaland er einn kröfuharðasti bílamarkaður heims og innkoma KIA hefur vakið athygli þar í landi eins og annars staðar.
Í höfuðstöðvunum í Frankfurt endurspeglast sú staðfesta KIA að halda uppi hámarks framleiðslugæðum. KIA bílar eru jafnframt að fullkomnu leyti lagaðir að væntingum evrópskra bílkaupenda. Höfuðstöðvar KIA í Evrópu eru í ellefu hæða byggingu og þar starfa 350 manns við miðlæga þjónustu.
Kia og íþróttirnar
Kia vinnur stöðugt að því að efla ímynd sína og þekkingu á vörumerkinu með samstarfssamningum við íþróttahreyfinguna, stuðning við alþjóðlega íþróttaviðburði og heimsþekkta íþróttamenn. Kia er opinber samstarfsaðili bæði UEFA og FIFA og er bakhjarl bæði Evrópumótsins í knattspyrnu 2008 og Heimsmeistaramótsins í knattspyrnu 2012.
Fyrirtækið er ennfremur aðalstuðningsaðili Opna ástralska tennismótsins og verður það fram til ársins 2013. Kia er einnig bakhjarl Davis bikarsins í tennis og hefur rennt enn styrkari stoðum undir framlag sitt til tennisíþróttarinnar með samstarfssamningum við tennisstjörnurnar Andre Agassi og nú Rafael Nadal, sem hafa verið alþjóðlegir sendiherrar vörumerkisins. Kia hefur skrifað undir breyttan samning í tengslum við X-leikana í Asíu, sem er þekktasta ofuríþróttakeppni heims. Kia er nú titilbakhjarl leikanna sem í kjölfarið kallast “Kia X-leikarnir í Asíu”. Kia kynnti jafnframt nýlega í Bandaríkjunum markaðstengt átak í samstarfi við körfuboltahreyfinguna þar í landi sem felur meðal annars í sér samstarfssamninga við níu lið í NBA-deildinni.