Loka

Fjölskylduferð um Hengilssvæðið með 4x4 klúbbi KIA

Sunnudaginn 20. apríl var farið í fyrstu ferð nýstofnaðs 4x4 klúbbs KIA. Förinni var heitið á Hengilssvæðið – einstakt landslag í bakgarði Reykjavíkur. Fararstjóri í ferðinni var Ari Arnórsson, sem þekkir svæðið betur en flestir aðrir. Í ferðinni var m.a. staldrað við í Nesjavallarvirkjun, keyrt uppá Skarðsmýrarfjall til að njóta óviðjafnanlegs útsýnis, sjaldséðir hverir skoðaðir og ótrúleg náttúra, sem er þó aðeins í 50 km fjarlægð frá Lækjartorgi. Ekki má gleyma grillhúsi KIA, þar sem ferðalöngum gafst færi á að njóta góðra veitinga og spjalla við aðra KIA eigendur undir bláhimni.

Um 250 manns mættu í þessa fyrstu ferð nýstofnað 4x4 klúbbs KIA og var almenn ánægja með ferðina. Stefnt er að því að þetta verði árlegur viðburður.

-