Loka

7 ára ábyrgð fylgir nú öllum Kia fólksbílum !


8. janúar 2010

7 ára ábyrgð fylgir nú öllum Kia fólksbílum !

Kia á Íslandi, mun frá og með 1. Janúar 2010 selja alla nýja bíla með 7 ára ábyrgð. Kia heldur áfram á braut velgenginnar sem það hefur rutt á undanförnum árum og býður á nýju ári 7 ára ábyrgð á öllum nýjum Kia bílum fyrstur bílaframleiðenda í heiminum. Fyrstu þrjú ár ábyrgðarinnar eru engin almenn takmörk á akstri, en á öllum ábyrgðartímanum er miðað við að aksturinn fari ekki upp fyrir 150.000 km. Ennfremur felur hún í sér ábyrgð gegn gegnumtæringu í 7-12 ár eftir gerðum.

Þrátt fyrir almenna efnahagsniðursveiflu í heiminum hefur Kia í Evrópu átt mikilli velgengni að fagna á síðasta ári. Kia hyggst halda áfram á braut þeirrar velgengi og býður því 7 ára ábyrgð á öllum nýjum Kia bílum fyrir Evrópu fyrstur bílaframleiðenda í heiminum.

Síðla árs 2006 vakti Kia mikla athygli innan bílaheimsins þegar fyrirtækið bauð í fyrsta sinn 7 ára ábyrgð á Kia cee'd sem framleiddur er í Evrópu. Nú býður Kia samskonar 7 ára/150.000 km ábyrgð á öllum sínum framleiðslubílum fyrir Evrópumarkað, allt frá hinum smáa og knáa Picanto til flaggskipsins Kia Sorento.

“Við höfum það yfirlýsta markmið að vera fremstir bílaframleiðenda í heiminum hvað snertir ánægju viðskiptavina. 7 ára ábyrgð á öllum bílum okkar er stórt skref í áttina að því markmiði. 7 ára ábyrgð mun án efa fjölga heimsóknum í sýningarsali okkar og auka söluna á árinu 2010 og næstu ár," segir Paul Philpott, framkvæmdastjóri Kia í Evrópu.

Í ákvörðun Kia felst yfirgripsmikil ábyrgð framleiðanda í sjö ár.

7 ára ábyrgð Kia gerir upphaflegum eiganda kleift að njóta bílsins án þess að hafa áhyggjur af kostnaðarsömum viðgerðum. Næstu eigendur njóta jafnframt sömu gæða því ábyrgðin fylgir bílnum. Vissir skilmálar fylgja þó ábyrgðinni og hún nær til að mynda ekki til eðlilegs slits eins og til dæmis á hjólbörðum, bremsuborðum og kúplingsdiskum. Auk þess þarf að viðhalda þjónustu samkvæmt þjónustuhandbók allan ábyrgðartímann.

Ábyrgðin nær til:

· Lakkskemmda í 5 ár (eftir gerðum).

· Hljómkerfis og leiðsögukerfis í 3 ár (að 100.000 km).

· Íhlutum, aukahlutum og rafgeymum í 2 ár.

· Ábyrgðin nær ekki til eðlilegs slits, til dæmis á hjólbörðum, bremsuborðum og kúplingsdiskum.

· Kia K2900 atvinnubíllinn er utan þessarar ábyrgðar og heldur 3 ára ábyrgð.

-