Aftur í fréttayfirlitKia kynnir nýjan Kia Soul
• Kia kynnir nýjan Kia Soul
• Formleg og djörf hönnun
KIA Motors hefur staðfest að nýr bíll sem settur verður á markað í haust mun heita KIA Soul og vera í anda þeirra bíla sem frumsýndir voru á alþjóðlegu bílasýningunni í Genf og vöktu þar mikla athygli. Bíllinn var kynntur í þremur útgáfum, SOUL Diva, SOUL Burner og SOUL Searcher. Greogory Guillaume, yfirhönnuður Kia Motors í Evrópu, hannaði bílinn undir handleiðslu Peter Schreyer.
KIA Soul mun höfða til þeirra sem eru ungir í anda. Endanleg útgáfa bílsins verður kynnt á alþjóðlegu bílasýningunni í París í september á þessu ári. Kia SOUL sniðgengur staðalgildi og er bíll sem kaupendur geta lagað að eigin kröfum, þörfum og persónuleika. Bíllinn mun höfða sérstaklega til þeirra sem eru ungir í anda – á hvaða aldri sem er,” segir yfirhönnuðurinn Gregory Guillaume. „Kia SOUL er ekki endurhönnun á eldri kynslóðum og því er viðbúið að hann verði hálfgerður uppreisnarseggur á bílamarkaðinum!”