Aftur í fréttayfirlitKia Soul hlýtur virtustu hönnunarverðlaun heims
29. mars 2009
Kia Soul hlýtur virtustu hönnunarverðlaun heims
Í fyrsta sinn frá því farið var að veita “Red Dot” hönnunarverðlaunin 1955 hefur kóreskur bílaframleiðandi unnið til verðlaunanna. Kia Soul bar sigur úr býtum í sínum flokki en alls voru tilnefningar 3.230 talsins.
“Red dot” hönnunarverðlaunin eru veitt af Design Zentrum Nordrhein Westfalen í Þýskalandi og er einhver þekktasta viðurkenning á sviði hönnunar í heiminum.
Kia Soul er nýlega kominn á markað. Hann sigraði í flokknum “Bifreiðar, samgöngur og húsvagnar”. Bíllinn er hannaður af teymi hönnuða í Kóreu, Kaliforníu og Evrópu. Kjarninn í hönnuninni gengur út á sértækar lausnir á sviði framleiðslu og hin skýru tengsl við aðra bíla í Kia-fjölskyldunni. Verðlaunin eru afrakstur þeirrar vinnu sem farið hefur fram innan Kia þar sem lögð hefur verið áhersla á að gera sess hönnunar í framleiðslunni einn af lykilþáttunum í starfsemi fyrirtækisins. Hönnun bílsins felur í sér tilfinningalega skírskotun og ber um leið með sér hugrenningar um notagildi ökutækisins. Soul er tákn um þá áherslu sem orðið hefur innan Kia í átt til ríkari hönnunar framleiðsluvara sem höfða til bílkaupenda.
Dómnefnd Red Dot hönnunarverðlaunanna er skipuð 29 sjálfstætt starfandi hönnuðum og háskólamönnum af öllum sviðum skapandi starfsemi. Verðlaunin verða afhent við formlega athöfn í Aalto-Theater í Essen í Þýskalandi 29. júní næstkomandi.