Aftur í fréttayfirlitKia Motors í Slóvakía hefur framleitt meira en 500.000 bíla
22. janúar 2010
Kia Motors í Slóvakía hefur framleitt meira en 500.000 bíla
Á rétt ríflega þremur árum hefur Kia Motors í Slóvakíu náð þeim merka áfanga að framleiða meira en 500.000 bíla í nýrri verksmiðju fyrirtækisins í Zilina en verksmiðjan var tekin í notkun í desember 2006. Þann 15. janúar síðastliðin var bíll nr. 500.000 framleiddur en það var Kia ceed sw og var sá bíll afhentur til mannúðarmála í Slóvakíu við það tilefni
Frá opnun verksmiðjunnar hefur Kia náð frábærum árangri í sölu á Kia bílum í Evrópu. Það endurspeglast í þeim mikla fjölda Kia Ceed bifreiða sem framleiddir hafa verið í verksmiðju fyrirtækisins í Slóvakíu en auk Kia ceed þá hefur Kia Sportage verið framleiddur þar um nokkra hríð. Kia vakti einmitt mikla athygli innan bílaheimsins þegar fyrirtækið bauð í fyrsta sinn 7 ára ábyrgð á Kia cee'd við opnun verksmiðjunnar, síðar á Kia Sportage og nú býður Kia samskonar 7 ára/150.000 km ábyrgð á öllum sínum framleiðslubílum fyrir Evrópumarkað. Kia er fyrstur bílaframleiðenda í heiminum til að bjóða 7 ára ábyrgð
Í ákvörðun Kia um 7 ára ábyrgð felst yfirgripsmikil ábyrgð framleiðanda. 7 ára ábyrgð Kia gerir upphaflegum eiganda kleift að njóta bílsins án þess að hafa áhyggjur af kostnaðarsömum viðgerðum. Næstu eigendur njóta jafnframt sömu gæða því ábyrgðin fylgir bílnum. Vissir skilmálar fylgja þó ábyrgðinni og hún nær til að mynda ekki til eðlilegs slits eins og til dæmis á hjólbörðum, bremsuborðum og kúplingsdiskum. Auk þess þarf að viðhalda þjónustu samkvæmt þjónustuhandbók allan ábyrgðartímann.
Kia á Íslandi býður 7 ára ábyrgð á öllum nýjum Kia bílum sem seldir eru á Íslandi frá 1. Janúar 2010.
Meðfylgjandi er mynd við það tilefni er 500.000 bíllinn var afhentur.
