Aftur í fréttayfirlitKia sér til þess að allir komist leiðar sinnar á EM 2008


(SEOUL) 28. maí, 2008 -- Kia Motors tilkynnti í dag að fyrirtækið muni afhenda 265 fólksbíla og 463 strætisvagna til að sjá til þess að allir komist auðveldlega leiðar sinnar meðan á Evrópukeppninni í knattspyrnu 2008 stendur en hún fer fram í Sviss og Austurríki í júní. Kia Motors uppfyllir þannig samning sinn sem UEFA EUROTOP samstarfsaðili og opinber bílaframleiðandi keppninnar.
Kia leggur til Opirus, cee’d, Sorento, Carens og Carnival úr breiðu úrvali bifreiða og verður áberandi á auglýsingaskiltum í tengslum við keppnina.
Evrópukeppnin í knattspyrnu (UEFA EURO 2008™) hefst 7. júní í Basel, Sviss, og verða nýir Evrópumeistarar krýndir 29. júní í Vín, Austurríki. Leikið verður í 8 borgum, í Austurríki (Vín, Salzburg, Innsbruck, Klagenfurt) og í Sviss (Basel, Zurich, Bern, Genf). Evrópukeppnin í knattspyrnu er stærsta verkefni sem KIA tekur sér fyrir hendur, í samvinnu við UEFA.
Kwang-Ho Nam, forstjóri Kia Motors í Evrópu, afhenti Martin Kallen, aðal skipuleggjanda Evrópukeppninnar 2008 og Philippe Margraff, markaðsstjóra UEFA, risastóran bíllykil í tilefni afhendingar á Kia bifreiðunum og sagði af því tilefni:: „Kia Motors lítur á markaðssetningu í tengslum við knattspyrnuviðburði sem lið í þeirri sýn okkar í að verða afburða leikmenn á alþjóðlega bílaleikvanginum. Við höfum markvisst unnið að því að minna á okkar framsæknu og nútímalegu framleiðslu á helstu íþróttaviðburðum út um allan heim.”